Veldu tungumál

Tjald- og hjólhýsasvæði

Opið allt árið – alltaf nóg pláss, bara mæta!

Glæsileg aðstaða

Tjaldsvæði Gesthúsa er stórt og fallegt. Aðstaðan er til fyrirmyndar og staðsetningin einstaklega góð. Mikil veðursæld er á svæðinu þar sem jaðrar þess eru skógi vaxnir.

Gestir hafa aðgang að glæsilegri þjónustumiðstöð með snyrtingum, sturtum, eldunaraðstöðu og stórum matsal. Við innkeyrsluna inn á stæðin er salernishús. Í og við þjónustumiðstöð er í boði frítt þráðlaust internet og gestir hafa aðgang að þvottavél og þurrkara gegn vægu gjaldi.

Svæðið skiptist í tvö aðskilin svæði, annars vegar svæði fyrir tjöld og hins vegar svæði fyrir húsbíla, tjaldvagna og fellihýsi með aðgangi að rafmagni. Rafmagnstenglar eru 40 talsins og eru staðsettir utan með svæðinu. Norðan við þjónustumiðstöðina er svæði þar sem hægt er að losa úr ferðasalernum og vatnstönkum sem og slanga til að fylla á neysluvatn.

Á vagnsvæðinu eru rólur fyrir börn og Grýlupottar sem þykja vinsælir hjá yngri kynslóðinni. Heitir pottar eru á svæðinu og standa gestum til boða gegn vægu gjaldi á opnunartíma þjónustumiðstöðvar. Börn yngri en 18 ára skulu vera í fylgd forráðamanna.

Í þjónustumiðstöðinni fæst kaffi, te, gosdrykkir, léttvín og bjór alla daga.

Tjaldsvæðið er í göngufæri við miðbæinn, sundlaugina, íþróttavöllinn, veitingastaði og matvöruverslanir.

Sem fjölskyldufyrirtæki leggjum við metnað í persónulega þjónustu og gerum allt sem við getum til að dvölin hjá okkur verði eftirminnileg.

Verðskrá 2026

Fullorðinn3.000 kr
Eldri borgari2.500 kr
Barn 13 – 17 ára1.500 kr
Gistináttaskattur400 kr.
Heitur pottur500 kr.
Rafmagn1.900 kr

Komdu við í þjónustumiðstöð og greiddu áður en þú leggur eða tjaldar.

Engin þörf á að bóka

Tjaldsvæðið er opið allt árið um kring. Einstaklingar þurfa ekki að bóka – við höfum nóg pláss! Komið í þjónustumiðstöð áður en þið leggið eða tjaldið og fáið upplýsingar um hvar skal leggja/tjalda.

Hópar, vinsamlega hafið samband í gegnum tölvupóst: gesthus@gesthus.is

Aðstaðan

Fyrir stóra sem smáa – fyrir allar tegundir ferðamanna.

Þráðlaust internet
Í og við þjónustumiðstöð er í boði frítt þráðlaust internet.
Frí bílastæði
Allir gestir leggja frítt.
Rafmagn
Rafmagnstenglar eru 40 talsins og staðsettir utan með svæðinu.
Losun ferðasalerna
Losun ferðasalerna og áfylling á drykkjarvatni norðan við þjónustumiðstöðina.
Þvottavél & þurrkari
Gegn gjaldi sem greitt er í kortasjálfsala við vélarnar.
Þjónustumiðstöð
Snyrtingar, sturtur, eldunaraðstaða og stór matsalur.

Reglur á tjaldsvæðinu

Verið velkomin á tjaldsvæði Gesthúsa!

  • Gestir skulu tilkynna komu sína í móttöku og greiða dvalargjöld ÁÐUR en tjaldað er eða ferðavögnum lagt. Rukkun úti á svæði er þjónusta sem greitt er aukalega fyrir.
  • Öll óþarfa umferð ökutækja á tjaldsvæðinu er ekki leyfð frá miðnætti til kl. 07.00. Sýnið tillitssemi og rjúfið ekki næturkyrrð að óþörfu – kyrrð og ró skal vera eftir miðnætti.
  • Ölvun er bönnuð á svæðinu. Vinnið ekki spjöll á náttúrunni.
  • Allt sorp skal láta í ruslagám á svæðinu, dósir og flöskur í dósagám.
  • Allur opinn eldur er bannaður.
  • Á Kótilettunni, um verslunarmannahelgina og á Sumri á Selfossi er 25 ára aldurstakmark. Barnafjölskyldur eru undanþegnar.
  • Misbrestur á umgengni eða háttvísi gagnvart öðrum gestum, starfsfólki og aðstöðu getur varðað fyrirvaralausum brottrekstri af svæðinu án bóta.
  • Engin ábyrgð er tekin á eigum tjaldgesta.

Skilmálar & spurningar

Einstaklingar þurfa ekki að bóka, við höfum nóg pláss! Hópar, vinsamlega hafið samband í gegnum tölvupóst á gesthus@gesthus.is.

Afbókunarskilmálar fyrir hópa: Þú getur afpantað þér að kostnaðarlausu þar til 7 dögum fyrir komu. Þú greiðir heildarverð bókunarinnar ef þú afpantar innan 7 daga fyrir komu eða mætir ekki.

Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.

Hafðu samband

Fylgdu okkur

© 2026 Gesthús Selfoss · Engjavegur 56, 800 Selfoss · Öll réttindi áskilin.