Veldu tungumál

Bókunarskilmálar

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega

Takk fyrir að velja Gesthús. Hér fyrir neðan eru bókunarskilmálar Gesthúsa. Vinsamlegast lestu þá vandlega áður en þú bókar.

Innritun

Innritun er á milli kl. 15.00 og 21.00. Við reynum að verða við öllum þeim séróskum sem okkur berast (eins og beiðni um ákveðið sumarhús eða smáhýsi og snemminnritun).

Ef þú telur að þú munir þurfa að innrita þig eftir kl. 20.00 vinsamlegast láttu okkur vita um áætlaðan komutíma. Til þess getur þú sent beiðni um séróskir við bókun eða haft samband við gististaðinn beint.

Útritun

Útritun er fyrir kl. 11.00. Vinsamlega hafðu samband við okkur fyrir kl. 10.00 á útritunardegi ef óskað er eftir að skila sumarhúsi eða smáhýsi seinna.

Greiðslur

Samþykkt kort: Visa, Mastercard.

Gesthús áskilur sér rétt til að taka frá upphæð tímabundið af kortinu þínu fyrir komu og að rukka heildarupphæð af uppgefnu korti 7 dögum fyrir áætlaða komu.

Vinsamlega athugaðu að rukkað er í íslenskum krónum (ISK) miðað við gengi þess dags sem greiðslan fer fram.

Reykingar

Öll sumarhús og smáhýsi eru reyklaus.

Gæludýr

Gæludýr eru leyfð sé þess óskað. Ekkert aukagjald.

Aldurstakmörk

Lágmarksaldur fyrir innritun er 20 ár.

Eftir að þú hefur bókað munt þú fá bókunarstaðfestingu frá Gesthúsum á uppgefið netfang.

Afbókunarskilmálar

Standard verð
Þú getur afpantað þér að kostnaðarlausu þar til 2 dögum fyrir komu. Þú greiðir heildarverð bókunarinnar ef þú afpantar innan 2ja daga fyrir komu. Ef þú mætir ekki greiðir þú heildarverð bókunarinnar.

Non-refundable verð
Vinsamlega athugaðu að ef bókun er afpöntuð, ef henni er breytt eða ef gestur mætir ekki (no show) er heildarkostnaður bókunarinnar gjaldfærður.

Þegar bókuð eru 4 eða fleiri herbergi gilda aðrar reglur og aukagjöld geta átt við.

Ef þú óskar eftir að afbóka þarft þú að hafa samband beint við Gesthús í gegnum netfangið gesthus@gesthus.is eða í síma +354 482 3585. Afbókanir eru ekki staðfestar nema þú hafir fengið senda afbókunarstaðfestingu.

Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.

Hafðu samband

Fylgdu okkur

© 2026 Gesthús Selfoss · Engjavegur 56, 800 Selfoss · Öll réttindi áskilin.