Fullkomin gisting fyrir þá sem vilja einfalda og ódýra gistingu.
Smáhýsin okkar eru öll með sérbaðherbergi, eldunaraðstöðu, uppbúnum rúmum og handklæðum. Húsin eru staðsett inni í fallegum skógi í kyrrlátu og rólegu umhverfi og andrúmsloftið er afslappað og heimilislegt.
Smáhýsin eru einungis 17 m² að stærð en þar er allt sem þú þarft. Við bjóðum upp á „standard“ 2ja manna herbergi með einu tvíbreiðu rúmi (140×200 cm) og 2ja–3ja manna herbergi (twin/triple) sem henta vel góðum vinum eða hjónum með ung börn, með einu 120×200 cm rúmi, öðru 90×200 cm og koju 70×200 cm. Framan við húsin eru 8 m² pallar þar sem gott er að setjast með kaffibolla og njóta.
Í eldhúsinu eru 2 eldavélarhellur, ísskápur, pottar, eldunaráhöld, borðbúnaður, hraðsuðuketill og vaskur. Á baðherberginu er sturta, salerni og handlaug.
Gestir í smáhýsum hafa frían aðgang að heitum pottum sem staðsettir eru við þjónustumiðstöð ásamt aðgangi að þvottavél og þurrkara.

Rólegur og góður staður til að njóta eftir landkönnun – þar sem þú finnur þig eins og heima.
Allt sem þú þarft fyrir þægilega dvöl – án lúxusverðmiðans.
Ísskápur og aðstaða til að laga te og kaffi.
Innritun: Á milli kl. 15.00 og 21.00
Útritun: Fyrir kl. 11.00
Gesthús Selfoss tekur á móti greiðslum með Visa og Mastercard og áskilur sér rétt til að taka frá upphæð tímabundið af kortinu þínu fyrir komu.
Bókaðu smáhýsi eða sumarhús beint hjá okkur.
Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.