Við söfnum aldrei persónuupplýsingum án þess að þú hafir gefið okkur þær beint, t.d. með því að senda okkur fyrirspurn eða bóka herbergi í gegnum vefsíðuna. Persónuupplýsingar eru notaðar til að ljúka kaupum á vörum eða þjónustu og til að auka og bæta þjónustu okkar.
Persónuupplýsingar notenda eru aldrei framseldar til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi nema samkvæmt dómsúrskurði. Öllum persónuupplýsingum er haldið öruggum og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Við getum þó ekki ábyrgst 100% öryggi þegar kemur að því að senda upplýsingar um netið og því er notkun vefsins á þína eigin ábyrgð.
Þú hefur rétt á að vita hvaða upplýsingar um þig við geymum og notum. Ef upplýsingar sem þú gafst okkur eru rangar áttu rétt á að þær séu leiðréttar eða þeim eytt.
Vefkökur (cookies) frá fyrsta aðila eru notaðar á ýmsum hlutum vefjarins og í ýmsum tilgangi, t.d. til að fylgja slóð notenda um vefinn, vista stillingar sem notandi hefur valið eða í öryggisskyni. Vefkökur eru ekki tengdar við persónuupplýsingar.
Gesthús notar vefmælingartól til mælinga á vefnum. Við hverja heimsókn eru örfá atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Slíkar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta og þróa vefinn. Engar tilraunir eru gerðar til að tengja heimsóknir við persónugreinanlegar upplýsingar.
Vefkökur þriðju aðila (Google og Facebook) eru notaðar á www.gesthus.is til að greina fjölda notenda og hegðun þeirra á vefnum. Upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur má finna á vefsíðum þeirra.
Þú getur stýrt notkun vefkakna í vafranum þínum og m.a. slökkt alfarið á þeim – leiðbeiningar um stillingar vefkakna.
Þjónusta okkar getur haft að geyma tengla á aðrar síður sem við stjórnum ekki. Smellir þú á tengil frá þriðja aðila verður þér beint á síðu hans. Við mælum eindregið með því að þú skoðir persónuverndarstefnu hverrar síðu sem þú heimsækir. Við berum enga ábyrgð á innihaldi, persónuverndarstefnum eða verklagi síðna eða þjónustu þriðju aðila.
Þessi vefsíða er í eigu og rekin af Gesthúsum og lýtur íslenskum lögum og reglum. Með notkun á vefsíðunni samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar, að vera bundin/n af þessum skilmálum og að fara eftir öllum viðeigandi lögum og reglum. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála er þér óheimilt að nota vefsíðuna.
Það er skilyrði fyrir notkun vefsíðunnar að þú samþykkir að bæta, verja og fría okkur ábyrgð gegn öllum kröfum, útgjöldum og tjóni sem kann að hljótast af notkun þinni á vefnum.
Við áskiljum okkur fullan rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er og taka breytingarnar gildi um leið og textanum er breytt. Áframhaldandi notkun þín á síðunni er háð því að þú samþykkir breytta skilmála.
Þú getur aðeins notað þessa vefsíðu fyrir þig persónulega og berð ábyrgð á þeim upplýsingum sem þú setur inn á hana, s.s. nafni, netfangi og símanúmeri. Ef þú telur að upplýsingar þínar séu ekki lengur öruggar skaltu án tafar hafa samband við okkur.
Allar upplýsingar, gögn og efni á þessari vefsíðu, þar með talin nöfn, vörumerki, verð og uppsetning vefsíðunnar, eru vernduð af höfundarrétti, vörumerkjarétti og öðrum reglum um hugverk. Þú mátt aðeins nota efnið í persónulegum tilgangi en ekki til endursölu eða í hagnaðarskyni. Óheimil notkun brýtur í bága við þessa skilmála og lög um hugverk.
Upplýsingar og þjónusta á vefsíðunni geta innihaldið ónákvæmni, villur eða úreltar upplýsingar og eru birtar eins og þær eru, án ábyrgðar. Fyrirvari þessi nær þó aðeins til þess sem leyfilegt er samkvæmt íslenskum lögum.
Þessi vefsíða gæti innihaldið hlekki á aðrar vefsíður. Við stjórnum hvorki né berum ábyrgð á upplýsingum, vörum eða innihaldi slíkra síðna. Notkun þín á þeim er á þína eigin ábyrgð.
Þótt eitthvað kunni að vanta í þessa skilmála höfum við ekki afsalað okkur neinum rétti sem við njótum samkvæmt íslenskum lögum. Ef einhver hluti skilmálanna telst ógildur verður hann fjarlægður án þess að það hafi áhrif á skilmálana að öðru leyti.
Um skilmála þessa og öll deilumál sem tengjast notkun vefsíðunnar gilda íslensk lög.
Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.