Gesthús Selfoss er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í hjarta Selfoss, staðsett við Engjaveg 56. Við segjum oft að við séum eitt best varðveitta leyndarmál Selfoss.
Við erum stolt af því sem við höfum upp á að bjóða: 22 herbergi í smáhýsum og þrjú glæsileg tveggja herbergja sumarhús. Smáhýsin eru tilvalin gisting fyrir allt að þrjá fullorðna eða par með tvö lítil börn. Í húsunum er lítill eldhúskrókur, snyrting með sturtu og uppbúin rúm. Gestir í smáhýsum fá frían aðgang að heitum pottum við þjónustumiðstöðina.
Fyrir þá sem eru að leita að aðeins meiri lúxus tókum við árið 2014 í notkun þrjú glæsileg 50 m² sumarhús sem rúma allt að sex manns. Í húsunum eru tvö herbergi, fullbúið eldhús, stofa og góð verönd með heitum potti og grillaðstöðu.
Tjaldsvæði Gesthúsa er glæsilegt. Svæðið skiptist í tvö aðskilin svæði, annars vegar fyrir tjöld og hins vegar fyrir húsbíla, tjaldvagna og fellihýsi með aðgangi að rafmagni. Á svæðinu er stór þjónustumiðstöð þar sem gestir hafa aðgang að snyrtingu, sturtum, eldunaraðstöðu og matsal. Norðan við þjónustumiðstöðina er hægt að losa ferðasalerni og vatnstanka og fylla á neysluvatn.
Á tjaldsvæðinu eru rólur fyrir börn og Grýlupottar sem þykja vinsælir hjá yngri kynslóðinni.

Sendu okkur póst!
Hvort sem þú ert að skipuleggja ferðalagið, ferðast með hóp eða vilt bara vita meira um svæðið – við aðstoðum með ánægju.
Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.