Gesthús Selfossi er hlýlegur gististaður í hjarta Selfoss, staðsettur við Engjaveg 56. Svæðið er umlukið háum trjám sem veita einstaklega gott skjól og friðsælt andrúmsloft.
Hvernig hljómar að slaka á í heitum potti á meðan norðurljósin dansa fyrir ofan þig?

Við bjóðum upp á tvennskonar gistingu, þrjú glæsileg 50 m² sumarhús með prívat heitum potti og 22 herbergi í smáhýsum, ásamt því að vera með frábært tjaldsvæði.
Smáhýsin okkar kúra í skóginum og í hverju þeirra eru uppbúin rúm, eldunaraðstaða, ísskápur og baðherbergi með sturtu. Fyrir þá sem eru að leita að aðeins meiri lúxus höfum við tveggja herbergja sumarhús til leigu, hvert með fullbúnu eldhúsi, stofu og fallegri verönd með heitum potti sem gestir hafa til einkanota.
Að auki höfum við rúmgott tjaldsvæði og glæsilega þjónustumiðstöð þar sem gestir hafa aðgang að snyrtiaðstöðu, sturtum, eldunaraðstöðu og matsal. Norðan við þjónustumiðstöðina er svæði þar sem hægt er að losa úr ferðasalernum og vatnstönkum sem og slanga til að fylla á neysluvatn.
Gesthús Selfoss er fullkominn staður fyrir þá sem vilja kanna Suðurlandið þar sem stutt er í allar helstu náttúruperlur og afþreyingu.
Smáhýsi, sumarhús og tjaldsvæði – veldu þá gistingu sem hentar þér best.
Við bjóðum upp á úrval drykkja, bæði áfengra og óáfengra. Við erum með bjór á dælu, léttvín, gos, kaffidrykki, te og heitt kakó. Einnig erum við með ýmsar gerðir af snakki og nammi.

Gesthús Selfoss er frábær staður fyrir ferðalanga enda staðsett í fallegum bæ og gríðarlega margt að skoða í nágrenninu. Kynntu þér okkar uppáhalds staði og afþreyingu á Suðurlandi.
56 mín. akstur
1 klst. og 12 mín. akstur
2 klst. og 31 mín. akstur
Góður undirbúningur er lykill að góðu ferðalagi. Kynntu þér veður og færð á vegum áður en þú leggur af stað.
Og ekki missa af því að sjá litríku norðurljósin.
Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.