
Árið 2014 voru byggð glæsileg 50 m² sumarhús sem rúma 4–6 einstaklinga.
Húsin kúra í skóginum sem veitir gott skjól og yndislega upplifun. Í hverju sumarhúsi eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi og hitt með tveimur einbreiðum rúmum. Að auki er tvíbreiður svefnsófi í stofunni.
Sumarhúsin eru fullbúin öllum helstu eldhúsáhöldum, eldavél, bakaraofni, örbylgjuofni, ísskápi, pottum, pönnu, borðbúnaði fyrir sex manns, brauðrist, kaffivél og hraðsuðukatli. Baðherbergið er með sturtu, salerni, handlaug, handklæðum og snyrtivörum.
Umhverfis sumarhúsin er rúmgóð verönd með garðhúsgögnum, frábærri grillaðstöðu og prívat heitum potti.
Gestir í sumarhúsum hafa frían aðgang að þvottavél og þurrkara við þjónustumiðstöðina.
Fyrir þá sem vilja meiri lúxus.
Einkaverönd með heitum potti, uppþvottavél og fullbúið eldhús. Í stofunni eru setusvæði og flatskjár.
Innritun: Á milli kl. 15.00 og 21.00
Útritun: Fyrir kl. 11.00
Gesthús Selfoss tekur á móti greiðslum með Visa og Mastercard og áskilur sér rétt til að taka frá upphæð tímabundið af kortinu þínu fyrir komu.
Fullbúin sumarhús með prívat heitum potti – bókaðu dvölina í dag.
Fjölskyldurekinn gististaður og tjaldsvæði í hjarta Selfoss – sumarhús, smáhýsi og hjólhýsasvæði, opið allt árið.